Auglýsing

Könnun

Hvor páska eggin eru betri?

Páskafrí.. :)

08. apríl 2007 klukkan 23:31

                    2viggns.jpgcouple8rz.jpg200002429.jpg
Jæja... góða kvöldið ;)

Er ekki málið að fara að reyna að virkja þessa síðu aðeins? J ég held það

En allaveganna þá er ég bara búin að vera í páskafríi núna geggjað gaman ... gott að fá smá afslöppun og hitta familíuna.. J an allaveganna er ég búin að brasa

Ýmislegt núna í fríinu J ég er búin að :

           

-         gefa rollunum mínum og hrossunum mínum á hverjum degi þangað til að ég fór á skagaströnd.

-         Hitta vinina

-         Fara á töltmót             

-         LÆRA

-         Fara á ball

-         Hanga með Gauta

-         Ooooooog margt fleira ;)


 
592923-medium.jpg

 Jámm maður er búin að bralla ýmislegt núna í fríinu.. J en ég komst ekkert á hestbak... sem að er ömurlegt... en ég fer bara næst þegar að ég kem heim.... vonandi.

Já það var páskaball á blönduósi eins og vanalega.. J Á móti sól var að spila og það var bara geggjað J maður hitti þarna fólk sem að maður hefur ekki hitt í marga mánuði eða svo..;) eins og Tedda fænda og svona ;) en já það var mikið tjúttað á ballinu.. það eina sem að var, var kanski bara að mér fanst þeir spila svo róleg lög... og maður átti erfit

með að komast í stuð ... eeen það þarf nú ekki mikið tl að koma mér í stuð svo að ég er góð ;)

            svo eftir ballið fórum ég, Gauti, Pálmi og Ágúst bara heim og fengum okkur coco puffs og fórum svo að sofa. Svo vöknuðum við “eldhress” *hóst* hóst* í morgun og fórum upp í Esso og fengum okkur þynkuborgara  en ég efast um að þetta kallist þynnkuborgari þar sem að engin af okkur var eithvað þunnur... J en samt.. góður hamborgari ;)

             en já svo skutlaði Gauti mér bara heim og stoppaði í smá stund.. reyndar sofnuðum við bara bæði í rúminu mínu... geggjað tilgangsrík heimsókn hehe :P nei nei það er gott að kúra ;)

             en jámm svo er maður bara búinn að vera hérna heima og éta páskaegg í dag... ;)

ég og Silfá horfðum á Pöddulíf haha :P Disney er klassík ;)

 

en já ég hef voða fátt að segja í bili,.. nema bara gleðilega páska J

  over and out ;)


 
34653A3A3A3C3B7Ffp333B3Enu3D32783E5.jpg06fb235c.jpg

Myndir ;)

03. apríl 2007 klukkan 22:12
Jæja .... góða kvöldið.. þetta verður ekki langt hjá mér i kvöld... vildi bara vekja athygli á því að ég hennti inn nokkrum myndum... hérna að heiman ;)
endilega kíkja og kommenta :D;)

Afmćli á morgun :D:D

23. mars 2007 klukkan 14:13
jæja... núna gengur þetta ekki lengur!  þetta er til háborinnar skammar!
en allaveganna þá er bara alveg fullt verið að gerast hérna hjá mér:)
skólinn í fullum gangi, vinir, söngvakeppni og fleira.

en allaveganna... þá fór ég heim á Hæli um helgina og það var bara geggjað :D gaman að hitta fólkið aftur og svo líka hestana og kindurnar og öll dýrin jibbíííí !!
en ég komst ekkert á hestbak svo að það var svartur punktur við helgina. eeen ég fór á hestasýningu svo að þetta reddaðist:P
ég var aðallega bara að hjálpa pabba og svona dót því að það komu 27 manns að skoða hjá okkur fjárhúsin og allir í kaffi... og getið þið hver fékk að þrífa?.....
hehe pabbi var nú voða duglegur líka :P
en svo gerðist eitt mjög leiðinlegt um helgina.... :( það þurfti að lóga einni tíkinni okkar, henni loppu litu... Grátaþví að hún beit 8 lömb úti í fjárhúsum hjá okkur..
:(

en annars er lítið að frétta nema að ég á afmæli á morgun :D víííí!
en ég ætla að hætta að hætta í bili.....

mánudagsfyllerí :D

25. janúar 2007 klukkan 02:34
 Endilega lesa  
Ég fór í partýið mamma, ég mundi hvað þú sagðir, ekki drekka og
keyra, svo
að ég fékk mér bara gos.
Ég var stolt mamma eins og þú sagðir að ég mundi verða, ekki
drekka og
keyra þó að vinir mínir vilji það, ég tók heilbrigða ákvörðun
mamma og
þínar ráðleggingar voru réttar.
Þegar veislan var loks búin, settist ég í bílinn minn, örugg um
að komast
heil heim.
En það sem gerðist mamma var það sem ég reiknaði síst með, nú
ligg ég hér í
götunni mamma og heyri lögguna segja: strákurinn í hinum bílnum
var fullur
undir stýri.
Mamma rödd hans er svo fjarlægð, ég er öll út ötuð í blóði mamma,
en ég
reyni að gráta ekki, ég heyri sjúkraliðana segja: stelpan á ekki
mikið
eftir.
Ég er viss um að strákurinn pældi ekkert í þessu á meðan hann var
undir
áhrifum, því hann valdi að drekka og keyra. Mamma er ég að deyja?
Af hverju
gerir fólk þetta mamma? Vitandi að það getur eyðilagt líf.
Ég finn svo til mamma, það er eins og að ég hafi verið stunginn
með
óteljandi hnífum.
Segðu systur minni að vera ekki hrædd mamma, segðu pabba að vera
hugrakkur
og þegar ég fer til himna mamma viltu þá skrifa á legsteininn:
Stelpan hans
pabba.
Bara ef hann hafði ekki keyrt fullur mamma, þá væri ég enn á
lífi.
Ég á erfitt með að draga andann mamma, ég er svo hrædd, þetta er
mín hinsta
stund, en ég er ekki tilbúin mamma.
Ef ég gæti bara haldið utan um þig elsku mamma mín. Ef ég gæti
haldið í
hönd þína mamma á meðan ég dey. Mamma mín ég elska þig. Bless.
Ekki keyra undir áhrifum!!!!




Já þetta er sorgleg saga:(  alveg rosalega... þoli ekki þegar að fólk keyrir undir áhrifum.... það er með því heimskulegra sem að þú getur gert...



en á ég að segja ykkur einhverjar fréttir af mér?

ég er bara búin að vera í prófum.... sem að gengu vel... allt nema stærfræðin... féll í henni.... :( sem suckar.... en jámm svo eftir prófin s.s á  mánudaginn þá fórum við nokkrir krakkar að sletta úr klaufunum... glöð að vra komin í frí... og búin með þennan erfiða tíma....
vorum í íbúð á ak... og einhverjir af okkur voru að drekka... það var spilað á gítar... og sungið.. hlustað á tónlist og farið í ,, ég hef aldrei" leikinn skemmtilega... :)
hehe svo voru sumir orðnir fyllri en aðrir.. og Jóhann og Þorsteinn þá mest... ehh... aðallega þorsteinn samt... haha það var smá fyndið... en jámm ég er hætt að drösla fullu fólki heim... komin með nóg af því eftir mánudaginn ... og ég held að Guðrún og Margrét séu sammála mér.... ehh....
svo er ég bara komin á skagaströnd núna... í gúddí fíling að hitta fjölskylduna... :) sem að er geggjað :)

en já.. ég gleymdi að minnast á síðustu helgi.. þá kom alla mín í heimsókn á akureyri:) það var eggjað .. hún og sibbi brunuðu bara nor'ur að heimsækja mig :D það var gegjað.. ég kynnti þau fyrir Gauta, Janusi og Þorsteini.. :) bara gaman... bara takk fyrir frábæra helgi :*

en já. núna ætla ég að fara að gera eithvað annað en að hanga í tölvunni... :)
see yall ;)
Helga:P

tilgangslaust blogg...

28. desember 2006 klukkan 04:19
Góða kvöldið..... eru ekki allir í stuði....

en já.... það er lítið að frétta af mér.... nema bara að það eru Jól... jibbííí :D búin að borða alveg fullt af góðum mat og nammi :D:D en jámm .... ég er bara búin að vera hérna úti á Skagaströnd og gera lítið annað en að slappa af... :)
svo kom Gauti í gær og tók mig á rúntinn sem að var geggjað ;)  annars þá bara hef ég ekkert mikið að segja... er algjörlega tóm núna...

Jólin Jólin :D

23. desember 2006 klukkan 05:09
Góðan og bleessaðan daginn :D eru ekki allir í stuði ..? allaveganna er ég það :) þó svo að ég hafi ekkert að gera ...en það er annað mál ;) jámm jám...  það er lítið að frétta af mér ... allavegana svona sem að ég ætla að fara að skrifa á netið.... :/ :P en það eru að fara að koma jól...! það er þorláksmessa á morgun og ég er bara eifaldlega ekki í neinu jólastuði ...:/ bara alls engu... en það kemur vonandi á morgun þegar að ég fæ skötuna.. ;) úúú jee...:D en já ég veit bara ekkert hvað ég á að segja hérna svo að ég bara kveð í bili...
Gleðileg Jól :D


-helga

Svefngalsi ;)

10. desember 2006 klukkan 07:35
góða kveldið..... hvað segið þið .... ég er allaveganna í stuði .... og klukkan er komin langt yfir háttatíma.. ;) ég er bara að chilla hérna uppi hjá Hlyn og Gauta ásamt Skófí, Janisi og Janusi.. :P geggjað stuð...:D en já kanski maður ætti að fara að segja frá því sem að hefur verið að gerast hérna hjá mér undanfarið...
helgin er búin að vera fín ..... Bíó í gær... svo bara hanga hjá Gauta.... kemur á óvart... en allavegana þá fórum við nokkur... s.s ég, Skófí, Erla, hafdís,arndís,systa, gaurti, einar, ágúst, janus og Hlynur í bíó á Dead or alive... sem að er.. humm.... við skuloum segja... ekki mjög góð mynd.... en já ég hló mig allaveganna vitlausa..:P

svo á fimmtudaginn fórum ég, Þorsteinn, Joel, Berglind, Ársæll og Þröstur á Saw 3 sem að mér fynnst ógeðsleg..... þetta er bara ein viðbjóðslegasta mynd sem að ég hef séð....! en strákarnir náðu að hlægja svoldið að okkur berglindi... þegar að við öskruðum eins og vitlaysingar!! það var ágætt...

en allaveganna þá er ég komin með alvarlegan svefngalsa hæerna og ég ætla að fara að bögga gauta eithvað..!  víííí

Over and out!

-Helga

Blogg já....

21. nóvember 2006 klukkan 00:59
Góðan og blessaðan daginn .... hvað segið þið .. maður er ekki alveg að standa sig í þessu bloggi dæmi... en já... það er bara svona sitt af hverju búið að vera að gerast hérna hjá mér...:) bara hanga með fólki :P aðalega þorsteini og rúnari samt..:P en jámm... ég hef ekki hugmynd um hvað ég á að skrifa hérna... er eithvað svo tóm í augnablikinu... :/  en jamm helgin var fín... var bara að hjálpa pabba.... vorum að sortera féð..:P í 16 stiga frosti :/ sem að var ekkert rosalega gama...:/ en ég er svoldan harðjaxl...:P en jámm svo var maður bara að hjálpa eithvað til heima... fyrst að Ólöf var í Danmörku :P  en jámm svo fór ég bara með Adda hingað á Ak í gær.. það var  humm... skrautleg ferð...:P ... (ég hata snjó) en já... förum ekki nánar út í það :P en svo var bara skóli í dag... og ég var alveg einstaklega þreytt fyrst að maður fékk ekki alveg að fara að sofa í gær....:P en jámm :P svona er þetta...:P ég hef ekki mikið að segja hérna... þannig að ég ætla að fara að gera eithvað... kanski biðja hana Slkófí mina afsökunar á því að hafa alltaf verið dottandi í gær....  þannig að  ég er farin.. over and out! :D
 en hér er eithvað dót að lokum... endilega fylla út ;P

1. Miðnafnið þitt:
2. Aldur:
3. Single or Taken:
4. Uppáhalds bíómynd:
5. Uppáhalds lag:
6. Uppáhaldshljómsveit:
7. Dirty or Clean:
8. Tattoo eða göt:
9. Þekkjumst við persónulega?
10. Hver er tilgangurinn með lífinu?
11. Myndiru bakka mig upp í slagsmálum?
12. Myndiru þaga yfir leyndarmáli ef það skipti mig máli?
13. Besta minningin þín um okkur?
14. Myndir þú gefa mér nýra?
15. Segðu eitthvað skrýtið um þig:
16. Myndir þú hugsa um mig ef ég væri veik/ur?
17. Getum við hist og bakað köku?
18. Hefuru heyrt kjaftasögu um mig nýlega?
19. Talaru eða hefuru talað illa um mig?
20. Finnst þér ég góð manneskja?
21. Myndir þú kerya með mér hringinn í kringum landið?
22. Finnst þér ég aðlaðandi?
23. Hverju myndiru vilja breyta í mínu fari?
24. Í hverju sefuru?
25. Kæmiru í heimsókn af tilefnislausu, bara til að chilla?
26. Myndir þú koma á stefnumót ef ég myndi bjóða þér?
27. Ef ég ætti einn dag ólifaðann, hvað myndum við gera?
28. Ætlaru að setja þetta á þína síðu svo ég geti fyllt þetta út?

Góđan og blessađan daginn!

08. nóvember 2006 klukkan 16:25

Já já góðan daginn! ég sit bar hérna í eyðu.... mjög gaman :) en já.... blogg... einmitt:)
Ég var nú bara að koma úr vetrarfríi..... fór heim í sveit... hitti fólkið mitt og svona... geggjað stuð Glottandi en já... ég fór sem sagt heim á fimmtudaginn.... og gerði nú ekki mikið þá....
svo fór ég í heimsókn í Húnavallaskóla daginn eftir s.s á föstudeginum.. það var bara stuð... reyndar fékk helmingurinn af fólkinu nett áfall af því að sjá mig þarna... en ok :P en já... það var bara nokkuð gaman að sitja þarna í tíma.... og ég verð að segja... dagurinn leið sko ekki svona hratt þegar að ég var þarna í skóla....!:( ohh... ég sakna Húnavalla... en já.... MA er náttúrulega frábær líka ;) en eftir skólan fórum við svo (10. bekkurog ég, Hlíf og Halli Palli) í afmæli til Jóns Árna :) það var bara geggjað :) fékk líka náttúrulega að hitta Val og Huldu.... það var bara æði... og já bar allur þessi bekkur er æði :D
en já... svo eftir afmælið fór ég bara heim að sofa.
svo var heldin bara róleg... ég og pabbi reyndum ítrekað að taka okkur DVD mynd en það var aldrei neitt inni... svo að við enduðum á því að taka Rauðhettu...!!!! fyrir Maríu reyndar.... en ok :P

svo kom ég bara hingað á ak á mánudaginn.... og er bar búin að vera´í skólanum... reyndar þá var þetta massífa sleep over hérna í 2223 á mánudaginn... við sváfum hérna 4. ég, þorsteinn, Svandís og Jenný. hehe ég held að þorsteini hafi nú ekkert leiðst ;) en já.... þetta var stuð ,.... þó að við værum hálf sofandi í skólanum daginn eftir :P
hehe en já nú er þessi eyða að verða búin svo að ég ætla að fara að drífa mig í tíma :P bæjó ;)

Jingle bell, jingle bell, jingle bell rock.....:D

01. nóvember 2006 klukkan 16:25
já ætli maður verði ekki að blogga eithvað hérna á þessarri síðu hérna...:P er í eyðu og hef ekkert betra að gera ;) hehe en já það er bara búið að vera þokkalega mikið að gera hérna hjá mér þessa dagana... skóli skóli skóli...:)
en allaveganna þá var gærdagurinn bara þokkalegur...fór í skólan... og svo eftir skóla fór ég með Þorsteini og Rúnari niður á Glerártorg og við fengum okkur að borða...:P svo sáum við þennan líka snilldar útlending þarna á torginu.... að babbla eithvað tungumál sem að enginn skildi.... haha það var snilld en ok :P
Svo bara fórum við að horfa á mynd hérna í mínu herbergi og við Þorsteinn stein rotuðumst þarna í rúminu hennar Jennýar....:S:) greyjjið Rúnar haha ..... bara einn vakandi....  en já svo var bar kóræfing... og getið þið hvað... við fórum að æfa jólalög....!!!! hahaha þannig að ég er að komast í jólastuð...
en já.... ég er bara einstaklega hugyndasnauð í augnablikinu þanig að ég kveð í bili...:P

Leit

Innskráningar kubbur